SAH greiðir uppbót

Written by Sigurður Eyþórsson | .

SAH afurðir hafa tilkynnt að fyrirtækið greiði 2.8% uppbót á innlagt lamba- og ungnautakjöt á árinu 2012.  SAH er síðasta afurðastöðin til að tilkynna um slikar greiðslu.  Sláturfélag Suðurlands reið á vaðið þann 20. febrúar sl. og nú, tveimur mánuðum síðar, hafa allar sjö afurðastöðvarnar tilkynnt um svipaðar greiðslur.  

Að teknu tillit til þessara greiðslna þá endaði meðalverð á lambakjöti til bænda fyrir innlegg 2012 í tæpum 543 krónum á kíló sem er 40 kr. (8%) hækkun frá árinu 2011.  LS fór fram á að verðið yrði 550 kr/kg þegar samtökin gáfu út viðmiðunarverð síðla sumars 2012.   Verð fyrir annað kindakjöt var um 252 kr/kg sem er í samræmi við viðmiðunarverð LS

Sala í mars

Written by Sigurður Eyþórsson | .

Sala á kindakjöti í mars sl. var 577 tonn, en í sama mánuði 2012 var salan 503 tonn. Miðað við sama ársfjórðung og 2012 (jan-mar) var salan 0,7% minni en 4,8% meiri m.v. 12 mánaða tímabil (apr-mar).

12 mánaða markaðshlutdeildin er þannig að alifuglakjöt er í 1. sæti (32%), kindakjöt í 2. sæti (26,8%), svínakjöt í þriðja (22,2%), svo nautakjöt (16,6%) og loks hrossakjöt (2,4%). Kjötsala í heild jókst um 3,5% á tímabilinu.

Allar ofangreindar tölur miðast eingöngu við innanlandssölu. Innflutt kjöt er ekki talið með, en flutt voru inn 226 tonn af kjöti fyrstu tvo mánuði ársins.

Útflutningur var 122 tonn í mars, samanborið við 231 tonn í mars 2012. Framleiðsla var 92 tonn í mars, en flest sláturhús buðu upp á að hægt væri að koma fé til slátrunar í aðdraganda páskanna.

Fleiri fréttir

Vinsælastu fréttirnar