|
Miðvikudagur, 22. febrúar 2012 00:00 |
|
Skrifstofa LS verður lokuð fram til fram til fimmtudagsins 1. mars. Framkvæmdastjóri verður erlendis 22.-27. febrúar og síðan við störf á Búnaðarþingi 28.-29. febrúar.
Að sama skapi verður lítið um uppfærslur á vefnum á sama tíma.
Brýnum erindum má beina til formanns. |
|
|
Miðvikudagur, 22. febrúar 2012 00:00 |
|
Vakin er athygli á því að farið er að taka við pöntunum á árshátíð LS. Miðinn kostar kr. 6.500 pr. mann og hægt er að panta á skiptiborði BÍ í síma 5630300
Hátíðin fer fram í Súlnasal Hótels Sögu föstudagskvöldið 30. mars og hefst kl. 19 með fordrykk. Boðið verður upp á þríréttaða máltíð, skemmtidagskrá og dansleik með hljómsveit Geirmundar.
Veislustjóri verður Guðni Ágústsson og ræðumaður kvöldsins verður Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskólans. Síðustu tvö ár hefur selst upp á hátíðina.
Hópar með 8 manns eða fleiri geta pantað borð, en ekki hefur verið boðið upp á þá þjónustu áður. |
|
Þriðjudagur, 21. febrúar 2012 21:07 |
Fjölmörg aðildarfélög LS halda aðalfundi á næstu dögum
Miðvikudaginn 22. febrúar verður aðalfundur í Vestur-Húnavatnssýslu. Fundurinn verður haldinn í matsal sláturhúss K.V.H. ehf kl. 20. Fyrir fundinn verður kvöldverður sem hefst kl. 20. húsið opnað kl. 19.30.Gestir á fundinum verða Sindri Sigurgeirsson formaður L.S. og Magnús Freyr Jónsson framkvæmdarstjóri SKVH.
Fimmtudaginn 23. febrúar verður aðalfundur í Austur-Skaftafellssýslu. Fundurinn verður að Hrollaugsstöðum kl. 20. Fanney Lárusdóttir gjaldkeri LS verður gestur fundarins. Athugið að fundinum var frestað um tvo daga, en upphaflega var áætlað að hann yrði 21. feb.
Fimmtudaginn 23. febrúar verður aðalfundur í N-Þingeyjarsýslu. Fundurinn verður í matsal Fjallalambs og hefst kl. 16. Sama dag verður aðalfundur í S-Þingeyjarsýslu. Hann verður í Ýdölum kl. 20.30. Sindri Sigurgeirsson formaður LS og Þórarinn Pétursson varaformaður verða gestir beggja fundanna.
Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Árnessýslu verður síðan haldinn 25. febrúar í Básnum, Ölfusi kl. 13:00. Gestur fundarins verður Oddný Steina Valsdóttir.
Þá liggur fyrir að aðalfundir félaganna í Strandasýslu, Borgarfirði og Skagafirði þann 6. mars. Fundurinn í Strandasýslu verður á Café Riis á Hólmavík kl. 13. Í Borgarfirði verður fundurinn að Hesti um kvöldið og í Skagafirði að Löngumýri, sömuleiðis um kvöldið. Nánar síðar.
Fundurinn á Héraði verður síðdegis 9. mars að Végarði í Fljótsdal, og daginn eftir, 10. mars í félaginu á Suðurfjörðum. Nánar síðar. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|