ja_mageia

Haustmyndir
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Forsíða Nýtt Freyjublað

Nýtt Freyjublað
Miðvikudagur, 15. febrúar 2012 00:00
Út er komið nýtt tölublað af búnaðarblaðinu Freyju, 1. tölublað 2012

Í frétt frá útgefanda segir m.a:
Þá er fyrsta heila starfsár búnaðarblaðsins Freyju hafið og nýtt blað aðgengilegt hér á vefnum. Nú er tæpt ár liðið frá því hugmyndin um útgáfu blaðsins kviknaði og frá þeim tíma þrjú blöð litið dagsins ljós.
Efni þessa fyrsta blaðs árið 2012 er mjög blandað og víða komið við. Þema blaðsins er vorið líkt og veðráttan undanfarna daga hefur borið með sér eftir langan kuldatíma fyrr í vetur. Þó er ekki ólíkt að eigi eftir að kólna aftur áður en vorið kemur endanlega.
Í blaðinu eru greinar um sáningu, áburðaráætlanir og sauðburð að ógleymdir umræðunni. Einnig bregðum við okkur í heimsókn austur á gresjur Ungverjalands ásamt því að fræðast um blendingsrækt nautgripa og blandaðan búskap á Tannstaðabakka í Hrútafirði.

Líkt og áður þiggjum við með þökkum álit lesenda á blaðinu sem og ábendingar um áhugavert efni. Best er koma því á framfæri með því að senda ritstjórn línu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Nýtt Freyjublað