




| Sala í janúar |
| Mánudagur, 13. febrúar 2012 00:00 |
|
Sala á kindakjöti í janúar sl. var 349 tonn í janúar síðastliðnum en í janúar 2011 var salan 242 tonn. Miðað við sama ársfjórðung og 2011 (nóv-jan) var salan 8,6% meiri en 1,2% minni m.v. 12 mánaða tímabil. 12 mánaða markaðshlutdeildin er þannig að alifuglakjöt er í 1. sæti (30,6%), kindakjöt í 2. sæti (26,0%), svínakjöt í þriðja (24,7%), svo nautakjöt (16,8%) og loks hrossakjöt (2,1%). Kjötsala í heild dróst saman um 1,2% á þessum 12 mánuðum Allar ofangreindar tölur miðast eingöngu við innanlandssölu. Innflutt kjöt er ekki talið með, en árið 2011 voru flutt inn 1.496 tonn af erlendu kjöti. Það eru tæp 6% af kjötmarkaðnum í heild á sama tíma. Útflutningur var 228 tonn í janúar. Framleiðsla var 173 kíló í mánuðinum. |
Lög og reglugerðir
Kindur.is - viltu fóstra kind?
Ræktunarmarkmið 2012
Sauðfjársamningurinn frá 2007
Breyting á honum frá 2009
Erlend sauðfjárbændafélög