




| Aðalfundir í næstu viku |
| Fimmtudagur, 16. febrúar 2012 00:00 |
|
Fjögur aðildarfélög LS halda aðalfundi í næstu viku. Miðvikudaginn 22. febrúar verður aðalfundur í Vestur-Húnavatnssýslu. Fundurinn verður haldinn í matsal sláturhúss K.V.H. ehf kl. 20. Fyrir fundinn verður kvöldverður sem hefst kl. 20. húsið opnað kl. 19.30.Gestir á fundinum verða Sindri Sigurgeirsson formaður L.S. og Magnús Freyr Jónsson framkvæmdarstjóri SKVH. Fimmtudaginn 23. febrúar verður aðalfundur í Austur-Skaftafellssýslu. Fundurinn verður að Hrollaugsstöðum kl. 20. Fanney Lárusdóttir gjaldkeri LS verður gestur fundarins. Athugið að fundinum var frestað um tvo daga, en upphaflega var áætlað að hann yrði 21. feb. Fimmtudaginn 23. febrúar verður aðalfundur í N-Þingeyjarsýslu. Fundurinn verður í matsal Fjallalambs og hefst kl. 16. Sama dag verður aðalfundur í S-Þingeyjarsýslu. Hann verður í Ýdölum kl. 20.30. Sindri Sigurgeirsson formaður LS og Þórarinn Pétursson varaformaður verða gestir beggja fundanna. |
Lög og reglugerðir
Kindur.is - viltu fóstra kind?
Ræktunarmarkmið 2012
Sauðfjársamningurinn frá 2007
Breyting á honum frá 2009
Erlend sauðfjárbændafélög