ja_mageia

Haustmyndir
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Forsíða Úthlutun úr Landbótasjóði 2012

Úthlutun úr Landbótasjóði 2012
Föstudagur, 17. febrúar 2012 00:00
Landgræðslan hefur lokið úthlutun styrkja úr Landbótasjóði árið 2012. Til úthlutunnar voru alls 33,0 mkr, þar af lögðu Landssamtök sauðfjárbænda fram 5,3 mkr samkvæmt samkomulagi sem Landssamtökin og Landgræðslan hafa gert um átak í uppgræðslu illa farinna afréttarlanda þar sem áhersla er lögð á samþættingu beitar og gróðurverndar og sjálfbærni lands. 

Alls bárust Landbótasjóði 68 gildar umsóknir en árið 2011 voru þær 62. Við úthlutun styrkja úr Landbótasjóði er lögð áhersla á að umsóknir byggi á landbótaáætlun þannig að við ákvörðun um styrkveitingu sé unnt að hafa góða yfirsýn yfir viðkomandi verkefni og að tryggt sé eins og kostur er verkefnið skili þeim árangri sem stefnt er að. Í flestum þeim verkefnum sem sjóðurinn styrkir verður að gera ráð fyrir að a.m.k. 3-4 ár taki að ná þeim árangri sem stefnt er að. Í ár hefur verið úthlutað 32,4 mkr til 59 verkefna en árið 2011 voru styrkþegar 56.

Yfirlit yfir styrkþega og styrkt verkefni er að finna hér Úthlutun úr Landbótasjóði 2012