




| Margir aðalfundir á næstunni |
| Þriðjudagur, 21. febrúar 2012 21:07 |
|
Fjölmörg aðildarfélög LS halda aðalfundi á næstu dögum Miðvikudaginn 22. febrúar verður aðalfundur í Vestur-Húnavatnssýslu. Fundurinn verður haldinn í matsal sláturhúss K.V.H. ehf kl. 20. Fyrir fundinn verður kvöldverður sem hefst kl. 20. húsið opnað kl. 19.30.Gestir á fundinum verða Sindri Sigurgeirsson formaður L.S. og Magnús Freyr Jónsson framkvæmdarstjóri SKVH. Fimmtudaginn 23. febrúar verður aðalfundur í Austur-Skaftafellssýslu. Fundurinn verður að Hrollaugsstöðum kl. 20. Fanney Lárusdóttir gjaldkeri LS verður gestur fundarins. Athugið að fundinum var frestað um tvo daga, en upphaflega var áætlað að hann yrði 21. feb. Fimmtudaginn 23. febrúar verður aðalfundur í N-Þingeyjarsýslu. Fundurinn verður í matsal Fjallalambs og hefst kl. 16. Sama dag verður aðalfundur í S-Þingeyjarsýslu. Hann verður í Ýdölum kl. 20.30. Sindri Sigurgeirsson formaður LS og Þórarinn Pétursson varaformaður verða gestir beggja fundanna. Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Árnessýslu verður síðan haldinn 25. febrúar í Básnum, Ölfusi kl. 13:00. Gestur fundarins verður Oddný Steina Valsdóttir. Þá liggur fyrir að aðalfundir félaganna í Strandasýslu, Borgarfirði og Skagafirði þann 6. mars. Fundurinn í Strandasýslu verður á Café Riis á Hólmavík kl. 13. Í Borgarfirði verður fundurinn að Hesti um kvöldið og í Skagafirði að Löngumýri, sömuleiðis um kvöldið. Nánar síðar. Fundurinn á Héraði verður síðdegis 9. mars að Végarði í Fljótsdal, og daginn eftir, 10. mars í félaginu á Suðurfjörðum. Nánar síðar. |
Lög og reglugerðir
Kindur.is - viltu fóstra kind?
Ræktunarmarkmið 2012
Sauðfjársamningurinn frá 2007
Breyting á honum frá 2009
Erlend sauðfjárbændafélög