




| Árshátíð LS 2012 |
| Miðvikudagur, 22. febrúar 2012 00:00 |
|
Vakin er athygli á því að farið er að taka við pöntunum á árshátíð LS. Miðinn kostar kr. 6.500 pr. mann og hægt er að panta á skiptiborði BÍ í síma 5630300 Hátíðin fer fram í Súlnasal Hótels Sögu föstudagskvöldið 30. mars og hefst kl. 19 með fordrykk. Boðið verður upp á þríréttaða máltíð, skemmtidagskrá og dansleik með hljómsveit Geirmundar. Veislustjóri verður Guðni Ágústsson og ræðumaður kvöldsins verður Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskólans. Síðustu tvö ár hefur selst upp á hátíðina. Hópar með 8 manns eða fleiri geta pantað borð, en ekki hefur verið boðið upp á þá þjónustu áður. |
Lög og reglugerðir
Kindur.is - viltu fóstra kind?
Ræktunarmarkmið 2012
Sauðfjársamningurinn frá 2007
Breyting á honum frá 2009
Erlend sauðfjárbændafélög