




| Slátur - frábær matur |
| Fimmtudagur, 14. júní 2007 00:00 |
Á
www.mbl.is er í dag frétt um að skoskir
bændur séu með markaðsátak í gangi og meðal annars sé þar verið
að hvetja til aukinnar neyslu á slátri. Ekki eru það fréttir fyrir
íslenska sauðfjárbændur að slátur sé frábær matur og einnig með
því ódýrasta sem hægt er að fá.
Bændur
í Skotlandi vilja beina augum samlanda sinna á mikilvægi þess að versla
innlendar afurðir meðal annars vegna þeirra atriða er snúa að
þekkingu á uppruna og að matvælaflutningar um langan veg auki losun
koltvíoxíðs. Sjá má alla fréttina á www.mbl.is
með því að smella á myndina af skoska slátraranum Neil Watt þar sem
hann er í búð sinni haldandi á haggis (skosku slátri). Þeir sem
hafa áhuga á skosku slátri er bent á upplýsingar (á ensku) sem má
finna á með því að smella á eftirfarandi hlekk. ALLT
UM HAGGIS
|
Lög og reglugerðir
Kindur.is - viltu fóstra kind?
Ræktunarmarkmið 2012
Sauðfjársamningurinn frá 2007
Breyting á honum frá 2009
Erlend sauðfjárbændafélög