|
Föstudagur, 03. september 2010 08:48 |
|
Sláturfélag Suðurlands hefur gefið út uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2010
Helstu atriði þess eru:
· Tekjur á fyrri árshelmingi 4.066 mkr. og aukast um 10,4% milli ára.
· 193 mkr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins, en 46 mkr. tap á sama tíma í fyrra.
· EBITDA afkoma var 340 mkr. en 275 mkr. árið áður.
|
|
|
Fimmtudagur, 02. september 2010 16:27 |
Sindri Sigurgeirsson formaður LS var í viðtali í fréttum RÚV í vikunni. Viðtalið fjallaði um afurðaverð og ályktun LS um málið. Hlusta má á viðtalið hér.
Sindri var einnig gestur í þættinum Hrafnaþing á ÍNN fyrir skömmu. Horfa má á þáttinn hér. Athugið að viðtalið byrjar ekki fyrr en eftir fyrsta auglýsingahlé. |
|
Miðvikudagur, 01. september 2010 15:16 |
Í grein framkvæmdastjóra LS um afurðaverð í Bændablaðinu 26. ágúst sl. er fjallað stuttlega um greiðslukjör í lokin.
Þar urðu þau mistök að textann mátti skilja sem svo að innleggjendur SAH ættu ekki kost á að fá innlegg sitt staðgreitt. Það er rangt. Hægt er að fá allt innleggið greitt á föstudegi eftir innleggsviku eins og verið hefur þrátt fyrir að einnig sé boðið upp á annað fyrirkomulag. Beðist er velvirðingar á þeim misskilningi sem þetta hefur valdið.
Hér er til áréttingar yfirlit um þau greiðslukjör sem eru í boði
SS, KS og SKVH: Allt innlegg greitt fyrsta föstudag eftir innleggsviku.
SAH: Allt innlegg greitt fyrsta föstudag eftir innleggsviku EÐA 75% greitt fyrsta föstudag eftir innleggsviku og 25% 1. mars 2011. Sé síðari kosturinn valinn greiðist 1. mars 2011, 4 kr./kg álag á allt innleggið, ekki bara síðari greiðsluna
Norðlenska: 80% innleggs greidd fyrsta föstudag eftir innleggsviku. 20% af innleggi í ágúst og september verða greidd 12. nóvember og 20% af innleggi í október verða greidd 12. desember.
SV: Fyrir innlegg frá 1-10 september verður greitt 22. september. Fyrir innlegg frá 13.- 24. september verður greitt 8. október. Fyrir innlegg frá 27 sept.til 8. október verður greitt 20.október. Fyrir innlegg eftir 11. okt greitt 1- 3 nóvember.
Fjallalamb: Fjallalamb: 70% innleggs greidd fyrsta föstudag eftir innleggsviku. 30% eru greidd í lok desember. |
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 294 |