|
Fimmtudagur, 09. september 2010 08:58 |
|
Miðað við fyrstu sendingar er útlit fyrir að takist að auka talsvert útflutning á lambakjöti til Bandaríkjanna nú í haust. Kjötið er nú selt í fleiri verslunum Whole Foods en áður og verslunin kynnir það undir kjörorðinu "Simply the best tasting lamb in the world" eða "Einfaldlega bragðbesta lambakjöt í heimi".
Næstu þrjá daga verður hópur starfsmanna Whole Foods staddur hér á landi í árlegri réttaferð. Hópurinn mun að þessu sinni heimsækja Norður og Vesturland m.a. koma í Undirfellsrétt og Hamarsrétt, Eiríksstaði í Dölum og fjölmarga fleiri staði á svæðinu. Vegna heimsóknarinnar verður skrifstofa LS lokuð á morgun, föstudaginn 10. september.
Það er sláturhús KVH á Hvammstanga sem sér um útflutning til Bandaríkjanna.
Kynning á lambakjötinu á vef Whole Foods. |
|
|
Miðvikudagur, 08. september 2010 16:22 |
Þorsteinn Ólafsson dýralæknir sauðfjársjúkdóma hjá MAST hefur tekið saman eftirfarandi leiðbeiningar og ábendingar um meðferð sauðfjár í réttum
Það er með ýmsu móti hvernig staðið er að sundurdrætti fjár eftir að það kemur úr sumarhögum. Víða er fé réttað í fjármörgum réttum þó að nú sé fjárfjöldinn ekki svipur hjá sjón hjá því sem var á síðustu öld. Í þessum réttum má ekki á milli sjá hvort er fleira fólk eða kindur. Óhjákvæmilega vill stundum verða heilmikill atgangur þegar verið er að reka kindurnar inn í almenninginn og handsama kindurnar. Þá er mikilvægt að við fullorðna fólkið séum þeim yngri til fyrirmyndar og gerum þeim grein fyrir að lömbin eru lifandi og þau eru hræddari við okkur en við við þau. Þess vegna er mikilvægt að fara vel að fénu og gera börnunum grein fyrir því að kindurnar eru ekki reiðskjótar.
|
|
Nánar...
|
|
Þriðjudagur, 07. september 2010 15:43 |
|
SS gaf í dag út nýja verðskrá. Helstu breytingar eru að verð hækkar í vikum 41-44 og dregið er úr verðbili milli vikna.
Búið er að taka þessar breytingar inn í verðsamanburð LS.
Vegin afurðaverðshækkun er nú 2.2% en var 0.4% við útkomu Bændablaðsins 26. ágúst. Það vantar 14.4 % upp á verðið nái viðmiðunarverði LS. Tæpum sjö krónum munar á hæsta og lægsta verði |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|