ja_mageia

Haustmyndir
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Forsíða SS birtir áburðarverð

SS birtir áburðarverð
Miðvikudagur, 03. mars 2010 15:51
SS birti í dag áburðarverðskrá fyrir komandi vor. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að verðið sé svipað og það var í fyrra og einnig að fyrirtækið sé búið að tryggja sér nægjanlegt magn. Bændur eru þó hvattir til að hraða pöntunum sínum til að hægt verði að ganga sem fyrst frá því áburðarmagni sem flutt verði til landsins. Sömuleiðis sé hægt að nýta sér hærri pöntunarafslátt ef pantað er snemma auk þess sem að staðgreiðsluafsláttur er hærri en verið hefur. SS selur áburð frá Yara verksmiðjunni norsku og er um að ræða einkorna áburð.

Um greiðsluskilmála er það að segja að veittur er fimm prósenta pöntunarafsláttur í marsmánuði. Staðgreiðsluafslætti er þannig háttað að veittur er sjö prósenta afsláttur í mars, fimm prósenta afsláttur í apríl og þriggja prósenta afsláttur í maí. Gjalddagi er 1. hvers mánaðar og eindagi 15. hvers mánaðar eftir pöntunarmánuð. Bændablaðið greindi frá.

Hér má sjá áburðarverðskrána á vef SS

Hér má sjá nánar um viðskiptakjör á vef SS

Hér má sjá efnainnihald áburðarins á vef SS

Sjá einnig á vef Búnaðarsambands Suðurlands

Comments (0)Add Comment

Write comment

security code
Write the displayed characters


busy