|
Miðvikudagur, 10. mars 2010 10:56 |
|
Næstkomandi laugardag (þann 13. mars) verða aðalfundir félaga sauðfjárbænda á Suðurfjörðum og á Héraði.
Aðalfundur félagsins á Suðurfjörðum verður í björgunarsveitarhúsinu á Fáskrúðsfirði og hefst kl. 14.00
Aðalfundur félagsins á Héraði og Fjörðum verður á Skjöldólfsstöðum kl. 17.30. Árshátíð félagsins verður að fundi loknum á sama stað.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Gestir beggja fundanna verða Sindri Sigurgeirsson formaður LS og Sigurður Eyþórsson framkvæmdastjóri samtakanna.
 |