ja_mageia

Haustmyndir
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Forsíða Fréttir

Fréttir
Meðferð sauðfjár í réttum Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 08. september 2010 16:22

Þorsteinn Ólafsson dýralæknir sauðfjársjúkdóma hjá MAST hefur tekið saman eftirfarandi leiðbeiningar og ábendingar um meðferð sauðfjár í réttum

Það er með ýmsu móti hvernig staðið er að sundurdrætti fjár eftir að það kemur úr sumarhögum. Víða er fé réttað í fjármörgum réttum þó að nú sé fjárfjöldinn ekki svipur hjá sjón hjá því sem var á síðustu öld. Í þessum réttum má ekki á milli sjá hvort er fleira fólk eða kindur. Óhjákvæmilega vill stundum verða heilmikill atgangur þegar verið er að reka kindurnar inn í almenninginn og handsama kindurnar. Þá er mikilvægt að við fullorðna fólkið séum þeim yngri til fyrirmyndar og gerum þeim grein fyrir að lömbin eru lifandi og þau eru hræddari við okkur en við við þau. Þess vegna er mikilvægt að fara vel að fénu og gera börnunum grein fyrir því að kindurnar eru ekki reiðskjótar.
Nánar...
 
Breytingar á verðskrá 7. september Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 07. september 2010 15:43

SS gaf í dag út nýja verðskrá. Helstu breytingar eru að verð hækkar í vikum 41-44 og dregið er úr verðbili milli vikna.

Búið er að taka þessar breytingar inn í verðsamanburð LS.

Vegin afurðaverðshækkun er nú 2.2% en var 0.4% við útkomu Bændablaðsins 26. ágúst.  Það vantar 14.4 % upp á verðið nái viðmiðunarverði LS.  Tæpum sjö krónum munar á hæsta og lægsta verði

 
Landskeppni Smalahundafélagsins Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 07. september 2010 10:48
Hin árlega landskeppni Smalahundafélags Íslands var haldin við frábærar aðstæður á Vorboðavelli við Blönduós helgina 28. - 29. ágúst s.l. Vel var mætt og var 21 hundur skráður til leiks en keppt er í 3 flokkum. Það var smalahundadeildin Snati í Húnavatnssýslu sem sá um framkvæmdina sem var til mikillar fyrirmyndar.
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 295