ja_mageia

Haustmyndir
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Forsíða

Breytingar á verðskrá 1. sept.
Miðvikudagur, 01. september 2010 00:00

SS gaf í dag út nýja verðskrá. Helstu breytingar eru að verð hækkar í vikum 40-42 og þrepum í verðskrá er fjölgað úr fimm í sjö.

Búið er að taka þessar breytingar inn í verðsamanburð LS

Vegin afurðaverðshækkun er nú 1.5% en var 0.4% við útkomu Bændablaðsins í síðustu viku.  Það vantar 15.2% upp á verðið nái viðmiðunarverði LS.  Rúmum þremur krónum munar á hæsta og lægsta verði.

 
Breytingar á verðskrá
Þriðjudagur, 31. ágúst 2010 17:33

SAH afurðir á Blönduósi gáfu í dag út nýja verðskrá. Helsta breytingin er að dregið er úr verðmun milli vikna og gildir nú eitt verð frá og með viku 39.

Búið er að taka þessar breytingar inn í verðsamanburð LS

Vegin afurðaverðshækkun er nú 1.3% en var 0.4% við útkomu Bændablaðsins í síðustu viku en það vantar 15.3% upp á verðið nái viðmiðunarverði LS.  5 og hálfri krónu munar á hæsta og lægsta verði.

 
Fsb. í Dalasýslu heldur opinn fund um afurðaverð
Þriðjudagur, 31. ágúst 2010 10:53
Föstudaginn 3. september, kl. 20:00, verður fundur í Dalabúð, Búðardal, þar sem fjallað verður um fyrirkomulag  afurðarverðs komandi sláturtíðar.

Eftirtaldir framsögumenn hafa staðfest komu sína á fundinn:
•    Jóhannes Sveinbjörnsson, Heiðarbæ.
•    Fulltrúi frá Landssamtökum sauðfjárbænda.
•    Fulltrúi/fulltrúar frá Kjötafurðastöð KS og Sláturhúsi KVH.
•    Fulltrúar frá SAH afurðum og Sláturfélagi Suðurlands gátu ekki gefið 100% loforð um að mæta, en ætla að reyna hvað þeir geta.

Það er von okkar að sem flestir sauðfjárbændur sjái sér fært að mæta.

Kveðja
Stjórn Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>