ja_mageia

Haustmyndir
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Forsíða

Dilkaverð næstu viku
Laugardagur, 28. ágúst 2010 16:09

Slátrun er ekki komin í fullan gang en a.m.k. þrjú sláturhús hafa gefið út verð fyrir næstu viku sem er vika 35.  Vegið meðalverð þeirra á dilkum miðað við flokkun í sömu viku 2009 er eftirfarandi:

SKVH  - 497 kr/kg (aðeins slátrað á mánudag).
Sláturfélag Vopnfirðinga - 457 kr/kg (takmarkað sláturmagn)
Norðlenska - 448 kr/kg (takmarkað sláturmagn)
Verð fyrir innleggjendur án viðskiptasamnings er 430 kr/kg

Auk þess eru í gildi sumarálagsgreiðslur í vikunni sem eru 600 kr/stk á dilka í gerðarflokkum E-O og fituflokkum 1-3+.

Heildarsamanburður fyrir vikur 36-45 var birtur hér á vefnum sl. fimmtudag.

 
Meðalverð 2010 - 2.2% afurðahækkun
Fimmtudagur, 26. ágúst 2010 12:27

Landssamtök sauðfjárbænda hafa eins og undanfarin ár gert samanburð á verðskrám sláturleyfishafa með því að reikna vegið meðalverð afurða. Samanburðurinn er nú flóknari vegna þess að verðskrám er skipt eftir vikum. Í raun eru því verðflokkar kindakjöts orðnir yfir 200 í stað 36 áður. Samanburðurinn nær yfir vikur 36-45 (6. sept - 14. nóv) Miðað er við flokkun á landsvísu eins og hún var 2009 og tekið er tillit framleiðslumagns dilka- og ærkjöts í einstökum vikum eins og það var þá, sem og flokkunar í einstökum vikum. Við útreikning á landsmeðaltali er miðað við hlutdeild einstakra sláturleyfishafa í sauðfjárslátrun 2009. Meðalverð hvers sláturleyfishafa er birt fyrir dilka, ærkjöt og samtals þar sem verðin tvö eru vegin saman miðað við hlutfall dilka- og ærkjöts af framleiðslu. Verðin miðast við allt tímabilið. og taka mið af verðskrám eins og þær birtust á vefsíðum sláturleyfishafa síðdegis 7. september

Nánar...
 
Stjórn LS ályktar um afurðaverð
Miðvikudagur, 25. ágúst 2010 09:08
Stjórn LS samþykkti eftirfarandi ályktun í gær um afurðaverð haustsins.

Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda mótmælir verðstefnu sláturleyfishafa eins og hún birtist í afurðaverðskrám haustsins. Tæplega 14% munur er á dilkakjötsverði milli vikna þegar hann er mestur og markaðsaðstæður réttlæta það ekki.   Stjórnin telur eðlilegt að greiddar séu álagsgreiðslur fyrir innlegg sem lagt er inn snemma sláturtíðar enda hafa sláturhúsin á stundum verið vannýtt þá, en verðmunurinn milli vikna nú er of mikill og endurspeglar ekki söluverðmæti afurðanna.

Jafnframt er ljóst að þessi verðstefna mismunar bændum.  Ekki hafa allir tækifæri til að leggja inn fé þegar verðið er hæst vegna skipulags smölunar á sínum svæðum.  Á hinn bóginn er jafnljóst er að innleggjendur munu heldur ekki allir geta fengið slátrun þegar verðið er hæst, jafnvel þó að þeir eigi möguleika á að koma með sláturfé þá.   Ennfremur ætla sumar afurðastöðvar ekki að hefja starfsemi fyrr en eftir 20. september þegar hætt er að greiða hæstu verðin.

Stjórnin hvetur sláturleyfishafa til að endurskoða þessa verðstefnu nú þegar.  Almennt hefur útgáfa afurðaverðs haustsins valdið miklum vonbrigðum en vegin meðaltalshækkun afurða er aðeins 0.4% sem óverulegt og langt innan við almennar verðlagshækkanir.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>