ja_mageia

Haustmyndir
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Forsíða

Byrjað að slátra í næstu viku.
Föstudagur, 20. ágúst 2010 12:01

Tveir sláturleyfishafar hafa kynnt að þeir ætli að slátra takmörkuðu magni í næstu viku (viku 34).  SKVH á Hvammstanga ætlar að slátra nk. mánudag, 23. ágúst og Norðlenska á Húsavík 25.-27. ágúst.

Norðlenska gerir ráð fyrir að slátra um 300 lömbum hvern þessara þriggja daga en SKVH verður aðeins með opið á mánudaginn.

SKVH mun greiða 80 kr/kg álagsgreiðslu fyrir innleggið.  Sem dæmi er verð á R3 með þeirri greiðslu 518 kr./kg.

Norðlenska tilgreinir ekki að það muni greiða sérstakar álagsgreiðslur fyrir innleggið þessa daga. Skv. verðskrá fyrirtækisins er verð á R3 í vikum 34-37 434 kr./kg.

Ekki eru sumarálagsgreiðslur í næstu viku.  Þær eru eingöngu í viku 35 (600 kr. pr dilk) og viku 36 (300 kr. dilk).  Þetta er síðasta árið sem þær eru í boði eins og áður hefur verið kynnt.

Heildarsamanburður á verðskrám allra sláturleyfishafa mun birtast hér í næstu viku.

 
Sindri í viðtali á RÚV
Föstudagur, 20. ágúst 2010 11:46

Sindri Sigurgeirsson formaður LS var í viðtali í hádegisfréttum RÚV í gær, fimmtudaginn 19. ágúst og fjallaði þar um að líkur eru á að ríkið skerði búvörusamningana enn frekar, en þeir voru eins og kunnugt er skertir verulega í fyrra.  Þá var ákveðið að ganga til samninga um málið og var breyting á samningnum undirrituð í apríl 2009 og síðar samþykkt af bændum í almennri atkvæðagreiðslu og á Alþingi.   Nú eru uppi hugmyndir um að framlög 2011 verði óbreytt að krónutölu frá 2010 sem er brot á samningnum frá 2009.  Bændablaðið leitaði viðbragða Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra og hann sagði í samtali við blaðið að hann teldi ekki ástæðu til að ganga frekar á kjör bænda (sjá tengil í frétt hér að neðan).

Viðtalið var tekið sl. þriðjudag á meðan á fundaferð LS stóð.  Fundaferðin gekk vel og voru gestir samtals um 300 á sjö fundum. Myndir og frekari umfjöllun munu birtast hér síðar. 

Sindri var einnig gestur þáttarins Hrafnaþing á sjónvarpsstöðinni ÍNN í gær en sá þáttur er ekki kominn á netið enn.

Frétt ruv.is um málið

Hlusta á viðtalið

Umfjöllun Bændablaðsins.

 
Allar verðskrár vegna haustslátrunar komnar
Fimmtudagur, 19. ágúst 2010 12:03
Allir sláturleyfishafar hafa nú birt verðskrár sínar fyrir slátrun á sauðfé á komandi sláturtíð. Áður hefur verið greint frá birtingu verðskráa SS, KS, SKVH og nú síðast Norðlenska. Fjallalamb, Sláturfélag Vopnafjarðar og SAH afurðir hafa nú einnig birt sínar verðskrár. Verð eru að mestu óbreytt frá síðasta ári hjá öllum sláturleyfishöfum utan að geymslugjöld svokölluð verða ekki greidd af sláturleyfishöfum í ár eins og verið hefur. Geymslugjöld eru 35,25 krónur á hvert kíló af öllu kindakjöti en nokkuð mismunandi er hvernig þeirri lækkun er dreift hjá sláturleyfishöfum. Í einhverjum tilvikum er lækkunin einungis á dilkakjöti sem gerir að verkum að hún er öllu meiri, eða allt að 39 krónur á kíló.

Hér að neðan má nálgast allar verðskrár og í einhverjum tilfellum rökstuðning sláturleyfishafanna með þeim. Auk þess má þar einnig sjá viðmiðunarverðskrá Landssamtaka sauðfjárbænda.  Samanburðar á verðskrám er að vænta hér á síðunni strax eftir helgi.

Verðskrá KS
Verðskrá SKVH
Verðskrá SS
Verðskrá Norðlenska
Verðskrá SAH
Verðskrá Fjallalamb
Verðskrá SV
Viðmiðunarverð LS

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>