|
Föstudagur, 13. ágúst 2010 00:00 |
|
Sala á dilkakjöti í júlímánuði 2010 var 538 tonn samanborið við 460 tonn í júlí 2009 (+16.7%). Miðað við sama ársfjórðung og í fyrra (maí-júl) er 19.2% söluaukning, en sé litið til 12 mánaða er 1.4 % samdráttur.
Sé litið til alls kindakjöts þá seldust 567 tonn í júlí. Það er 14.8% meira heldur en í júlí 2009 en þá var salan 494 tonn. Miðað við sama ársfjórðung og 2009 er er heildarsalan 16.3% meiri en 1.8% minni sé litið til 12 mánaða. 12 mánaða markaðshlutdeildin er nú þannig að alifuglakjöt er í 1. sæti sem fyrr, en kindakjöt er komið fram úr svínakjöti aftur og er í 2. sæti, en svínakjöt í þriðja, svo nautakjöt og loks hrossakjöt. Allar ofangreindar tölur miðast eingöngu við innanlandssölu.
Flutt voru út 45 tonn af kindakjöti í júlí 2010, sem er 20% meira en í júlí 2009. Að teknu tillit til sölu og útflutnings er 12% aukning í heildarafsetningu fyrstu sjö mánuði ársins miðað við sömu mánuði 2009. Birgðir eru rúmum 500 tonnum minni nú en í júlílok 2009.
Þessar tölur eru byggðar á gögnum um sölu á kjöti í heildsölu þ.e. bæði í verslanir, kjötvinnslur og veitingahús. Heimtekið kjöt er einnig meðtalið. |
|
|
Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 00:00 |
|
Minnt er á að sumarálag Markaðsráðs verður greitt á dilka sem slátrað verður í vikum 35 (30.8-3.9) - kr. 600 pr. dilk. Í viku 36 (6.9-10.9) verða greiddar 300 kr. pr. dilk. Geymslugjald til bænda verður kr. 8.50 pr./kg pr. mán frá 1. nóvember. Þetta er síðasta sláturtíðin sem þessar greiðslur verða í boði en þær falla niður frá og með sláturtíð 2011. |
|
Miðvikudagur, 11. ágúst 2010 11:17 |
Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda ákvað á fundi á mánudag að nýta heimild sína til að gefa út viðmiðunarverð á kindakjöti. Verðið gildir fyrir komandi sláturtíð. Verðskráin hækkar um 5% frá fyrra ári sem er nánast það sama og hækkun vísitölu neysluverðs á tímabilinu. Sölusamdráttur varð á innanlandsmarkaði 2009. Á heildina litið hefur innanlandssala verið með svipuðu móti fyrstu 6 mánuði þessa árs, en það sem af er sumri er þó betra en í fyrra. Vegna stóraukins útflutnings hefur afsetning hinsvegar gengið mun betur en 2009. Stjórnin telur því svigrúm til að hækka viðmiðunarverðið um sem nemur vísitöluhækkun og örlítið umfram það vegna almennra kostnaðarhækkana.
Fyrir liggur að ekki verður gerður samningur um birgðahald við sláturhúsin á komandi hausti. Stefnan er að greiða innleggjendum beint þá fjármuni sem húsin hafa fengið greidda vegna þess. Sláturhúsin sem þegar hafa gefið út verðskrá hafa lækkað verðskrá sína sem því nemur. Verðskrá LS tekur einnig mið af því. Það er þó gert með þeim fyrirvara að heimild sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins fáist til að greiða fjármunina út með áðurnefndum hætti. Verð á ærkjöti er þó ekki lækkað með sama hætti þar sem að stjórnin taldi verð þess orðið óásættanlega lágt.
Verðlagning á kindakjöti er frjáls en LS hefur heimild í búvörulögum til að gefa út viðmiðunarverð til bænda. Verðskrána má nálgast hér að neðan.
verdtaflaLS10.pdf bytes |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|