ja_mageia

Haustmyndir
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Forsíða

SKVH slátrar 23. og 30. ágúst.
Þriðjudagur, 10. ágúst 2010 09:15
Verðskrá sláturhúss KVH á Hvammstanga var gefin út fyrir helgi.  Fyrirtækir gefur út sameiginlegt verð með KS á Sauðárkróki eins og kunnugt er.  Vert er þó að vekja athygli á því að hjá þeim verður slátrað mánudagana 23. og 30. ágúst en það verður ekki í boði hjá KS.  23. ágúst verður jafnframt greitt 80 kr/kg álag á alla flokka en 40. kr/kg. álag þann 30. ágúst.  Þetta mun gilda bæði fyrir dilkakjöt og ærkjöt.

Verðskrána má finna hér.
 
Efst á baugi í Bretlandi
Þriðjudagur, 10. ágúst 2010 08:30
snytaserukRáðstefna og sýning samtaka sauðfjárbænda í Bretlandi er nýafstaðin eins og sagt hefur verið frá hér á saudfe.is.  Þar voru flutt fjölmörg erindi m.a. um reynsluna af örmerkingum, stöðuna í ræktunarstarfi, sjúkdóma og fleira.

Þeir sem vilja kynna sér umfjöllun um ráðstefnuna geta gert það hér.
 
Áhugasamir aðilar um framleiðslu sauða- og geitamjólkur óskast
Mánudagur, 09. ágúst 2010 00:00
saudabrieÞeim aðilum sem áhuga hafa á að mjólka geitur og/eða ær er bent á verkefni sem er í gangi um framleiðslu á sauða- og geitaostum.  Mjólkin er fryst og henni safnað saman, hún síðan send til MS í Búðardal sem vinnur osta úr henni.  Gegn ákveðnum skýrsluskilum fæst greiðsla fyrir hvern framleiddan lítra en fagfé sauðfjársamnings styrkir verkefnið.   

Mjaltafyrirkomulag hefur verið mismunandi milli þátttakenda sl. ár enda forsendurnar mismunandi.  Hjá MS Búðardal hafa verið framleiddir brie-ostar úr innsendri mjólk, geita-brie úr hreinni geitamjólk og sauða-brie úr hreinni sauðamjólk.  Ostarnir hafa fengið mjög góðar viðtökur hjá neytendum.  

Áhugasamir aðilar hafi samband við Sigríði Bjarnadóttur, ráðunaut á Búgarði og verkefnisstjóra verkefnisins, í síma 460-4453 eða um netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. í síðasta lagi 15. ágúst n.k.  Unninn hefur verið bæklingur um sauðamjaltir sem hægt er að senda til þeirra sem vilja.
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>