|
Föstudagur, 06. ágúst 2010 08:35 |
Í vikunni hefur í tvígang borið á sauðaþjófnaði í Borgarfirði og í Dölum. Í gær miðvikudaginn 4. ágúst fundust leifar af lambi í Norðurárdal í Borgarfirði og hafði kjötið verið hirt. Var þetta sambærilegt hræ og það sem fannst undir brúnni yfir Miðá í Mið-Dölum á mánudaginn 2. ágúst síðastliðinn. Samkvæmt lögreglu í Borgarbyggð og Dölum voru aðfarir svipaðar á báðum stöðum og svo virðist sem þjófurinn kunni vel til verka. Málið er óupplýst. Helgi Kristjánsson fyrrum frístundabóndi í Ólafsvík hefur ákveðnar kenningar um málið.
“Ég þori að fullyrða að þetta eru ekki Íslendingar. Heldur tel ég að þarna séu á ferð útlendingar sem koma til landsins í þeim tilgangi að lifa á landinu. Þeir ferðast um á húsbílum og veiða sér til matar. Þetta er ævintýrafólk sem veit hvað náttúran á Íslandi hefur uppá að bjóða en ég hef þurft að reka nokkra slíka úr veiðivötnunum. Ég veit að í fyrra hurfu fjögur til fimm lömb við Jökulháls og lömb hafa horfið víðar á Snæfellsnesi. Ég hef grun um að hér hafi verið sauðaþjófur á ferð en þeir ferðast um fáfarna vegi og fara snemma af stað á morgnanna. Þó svo að Íslendingar séu engir englar þá kunna þeir þetta ekki og nenna þessu ekki. Ég tel að fólk verði að gefa þessu ferðafólki gaum,” sagði Helgi Kristjánsson í samtali við Skessuhorn í dag.
Frá þessu er greint á vef Skessuhorns |
|
|
Fimmtudagur, 05. ágúst 2010 09:08 |
Einn af helstu samkeppnisatburðum Gay Pride og Fiskidagsins mikla, sem verða haldnir með pompi og prakt á Dalvík og í Reykjavík um komandi helgi, fer fram í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum laugardaginn 7. ágúst næstkomandi kl. 14:00. Þá verður haldin ökuleikni dráttarvéla á Sævangsvelli og boðið upp á töðugjöld í Kaffi Kind gegn vægu verði. Keppendur í ökuleikninni keyra í gegnum stórskemmtilega braut með ýmsum þrautum á sem stystum tíma og og í tilkynningu segir að vegleg verðlaun séu í boði fyrir sigurvegara í karla- og kvennaflokkum. Frekari upplýsingar má nálgast á www.strandir.is/saudfjarsetur
|
|
Fimmtudagur, 05. ágúst 2010 08:59 |
|
Norðlenska ætlar að bjóða upp á forslátrun á Húsavík í takmörkuðu magni frá 25. ágúst. Almenn sauðfjárslátrun á Húsavík hefst hinsvegar 6. september og stendur til 27. október. Á Höfn er áætlað að byrja 21. september og slátra til októberloka.
Bændur eru hvattir til þess að panta tímanlega hafi þeir hug á forslátrun. „Við áætlum að slátra 300-400 lömbum á dag, 25.-27. og 30.-31. ágúst. Það verður því um takmarkað magn er að ræða og ekki hægt að lofa að allir komi sínu að þessa daga,“ segir Sigmundur Hreiðarsson vinnslustjóri Norðlenska á Húsavík. Sjá nánar á vef fyrirtækisins.
Norðlenska hefur ekki gefið út afurðaverð fyrir haustið. Aðeins SS hefur gefið út verðskrá enn sem komið er. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>
|