ja_mageia

Haustmyndir
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Forsíða

Nýjustu verð erlendis
Þriðjudagur, 03. ágúst 2010 10:58

Eins og kunnugt er þá er SS búið að birta afurðaverð sitt fyrir haustið.  Því er ekki úr vegi að skoða nú framleiðendaverð á dilkakjöti í nokkrum löndum eins og stundum hefur verið gert hér á saudfe.is.  Í íslenskum krónum eru verðin allsstaðar hærri en hérlendis nema í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi.  Verðþróun hefur verið nokkuð mismunandi, sé litið til verðbreytinga í erlendri mynt, allt frá 7% lækkun á Spáni og upp í ríflega 33% hækkun í Ástralíu.

Meðalverð á Íslandi 2009 var 439 kr/kg.

Írland      
Verð nú (25. júlí): 3.94€/kg
Meðalverð ársins: 4.53€/kg (763 ISK)
Verðbreyting frá sama tíma í fyrra í erlendri mynt: +14.4%

Norður - Írland      
Verð nú (25. júlí): 4.07€/kg
Meðalverð ársins: 4.60€/kg (775 ISK)
Verðbreyting frá sama tíma í fyrra í erlendri mynt: +11.1%

Bretland
Verð nú (25. júlí): 4.23€/kg
Meðalverð ársins: 4.74€/kg (798 ISK)
Verðbreyting frá sama tíma í fyrra í erlendri mynt: +12.3%

Spánn    
Verð nú (25. júlí): 4.56€/kg
Meðalverð ársins: 4.13€/kg (695 ISK)
Verðbreyting frá sama tíma í fyrra í erlendri mynt: -7.0%

Holland    
Verð nú (25. júlí): 4.39€/kg
Meðalverð ársins: 4.75€/kg (800 ISK)
Verðbreyting frá sama tíma í fyrra í erlendri mynt: +1.1%

Þýskaland
Verð nú (25. júlí): 3.97€/kg
Meðalverð ársins: 4.34€/kg (731 ISK)
Verðbreyting frá sama tíma í fyrra í erlendri mynt: +1.2%

Frakkland
Verð nú (25. júlí): 5.49€/kg
Meðalverð ársins: 5.81€/kg (978 ISK)
Verðbreyting frá sama tíma í fyrra í erlendri mynt: -1.4%

Nýja - Sjáland
Verð nú (25. júlí): 2.97AUD/kg
Meðalverð ársins: 2.45AUD/kg (287 ISK)
Verðbreyting frá sama tíma í fyrra í erlendri mynt: +5.2%

Ástralía
Verð nú (25. júlí): 3.34AUD/kg
Meðalverð ársins: 3.14AUD/kg (367 ISK)
Verðbreyting frá sama tíma í fyrra í erlendri mynt: +33.6%

Ekki eru aðgengileg sambærileg gögn fyrir Noreg og Svíþjóð en til fróðleiks þá er verð á R3 hjá Fatland í Noregi núna 44.63NOK/kg (954 ISK) - hækkun er 2.4% frá sama tíma í fyrra. Hjá Scan í Svíþjóð er verð á R3 34.25SEK/kg (616 ISK) sem er 2.8% lækkun frá sama tíma í fyrra.

Ennfremur er meðalverð nú (30. júlí) í Bandaríkjunum 5.47USD/kg (702 ISK).

 
Stórsýning í Bretlandi
Föstudagur, 30. júlí 2010 09:41

Samtök sauðfjárbænda í Bretlandi halda stórsýningu næstkomandi þriðjudag í Malvern í Englandi.  Þar koma fjölmargir aðilar sem þjónusta greinina til að sýna vörur sínar, auk sýninga á ræktunargripum, fyrirlestra, keppna og fleiri atriða.

Ef einhver er á ferðinni í Bretlandi í næstu viku þá má kynna sér sýninguna hér.  Þess má geta að erlendir gestir fá ókeypis inn gegn framvísum vegabréfs.

 
Samvinna um verkun og útflutning aukaafurða
Fimmtudagur, 29. júlí 2010 15:00

pylsaFjögur sláturhús á Norður- og Austurlandi hafa stofnað fyrirtækið Iceland Byproducts til að fullvinna garnir til útflutnings. Norðlenska hafði forgöngu um stofnunina en einnig standa SAH Afurðir á Blönduósi, Fjallalamb á Kópaskeri og Sláturfélag Vopnfirðinga að fyrirtækinu, að sögn Norðlenska.

„Iceland Byproducts er stofnað í samvinnu við írska fyrirtækið Irish Casings og munu tveir starfsmenn frá Írlandi verða hér á landi í haust og hafa yfirumsjón með vinnslunni. Garnir hafa verið hálfverkaðar hérlendis og það verður gert áfram í einhverjum mæli í haust,“ segir í frétt Norðlenska.

Þar segir einnig að Reynir B. Eiríksson, framleiðslustjóri Norðlenska, vonist til þess að fleiri sláturleyfishafar leggi inn garnir til hins nýja fyrirtækis í framtíðinni til viðbótar við sláturleyfishafana sem eiga fyrirtækið.

„Garnirnar verða seldar til Egyptlands þar sem þær verða flokkaðar og síðan notaðar utan um pylsur af ýmsu tagi. Reynir gerir ráð fyrir að í haust verði unnar 240 til 250 þúsund garnir á Húsavík.

Hjá Iceland Byproducts verða einnig verkaðar vambir til útflutnings. Þær verða seldar til Gana og notaðar í súpur og annað slíkt. Norðlenska hefur undanfarið selt bein á svipaðar slóðir,“ segir ennfremur í frétt Norðlenska.

Sjá nánar á vef Norðlenska.

 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>