ja_mageia

Haustmyndir
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Forsíða

Hvað þýðir verðskrá SS?
Þriðjudagur, 27. júlí 2010 11:16
Með lækkun SS lækkar meðalverð fyrirtækisins á kindakjöti til bænda úr 407 krónum í 372 eða um rúmar 35 krónur.

Lambakjöt eingöngu lækkar úr 438 kr í 399 kr.

Að því gefnu að leyfi sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytis fáist mun greiðsla skv. sauðfjársamningi sem sláturhúsin hafa hingað til fengið nú renna beint til bænda. Þar er um að ræða fjárveitingu skv. liðnum "Markaðsstarf og birgðahald" sem er ætluð til að greiða niður kostnað við birgðahald á kindakjöti.  Þetta leyfi liggur ekki formlega fyrir enn.  

Fáist leyfið mun þessi afurðaverðslækkunin því verða bætt upp að fullu með þeim fjármunum. Þetta eru um 320 þúsund á meðalbú sem kæmu því til greiðslu með öðrum hætti en áður.

Það breytir því ekki að afurðaverð er eftir sem áður óbreytt á milli ára og bændur þurfa þá að taka á sig allar aðfangahækkanir og kostnaðarhækkanir sem orðið hafa undanfarna 12 mánuði.  Í raun er um lengri tíma að ræða því að sláturleyfishafar hafa ekki greitt viðmiðunarverð LS síðan 2007.

Þó ber að geta þess að þessi verðskrá er aðeins sú fyrsta fyrir komandi haust en undanfarin haust hafa verðskrárnar tekið breytingum allt fram í september.
 
Fyrsta afurðaverð haustsins
Mánudagur, 26. júlí 2010 14:38

logo_slaturfelagid.gifSláturfélag Suðurlands, SS, kynnti í fréttabréfi í síðustu viku verðskrá sína fyrir haustslátrun á kindakjöti. Þetta er mun fyrr en venjulega og ber að fagna því.

Staðgreiðslu verður haldið áfram, föstudag eftir lok hverrar innleggsviku. Afurðaverðið í dilkakjöti lækkar hins vegar í öllum flokkum um 39,0 kr/kg frá árinu 2009, en verð af fullorðnu stendur í stað. Sláturleyfishafar hafa fengið sem nemur 35,25 kr/kg greitt frá BÍ í vaxta- og geymslugjald á allt kjöt, bæði af dilkum og fullorðnu sem og heimtekið.  Þessir fjármunir eiga nú að fara beint til bænda en ekki í gegnum afurðaverð hjá sláturleyfishöfum.  Formlegt leyfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins fyrir því liggur þó ekki fyrir enn.

SS lækkar afurðaverðið í kindakjötinu sem þessu nemur. Sú nýbreytni er nú tekin upp að afurðaverðið er breytilegt eftir tímabilum, hæst fyrstu vikur sláturtíðarinnar en lækkar svo er líður á sláturtíðina. Verðið fer úr 110% af fullu verði (í vikum 36 og 37) niður í 96% (í vikum 41-45).

Miðað við verðskrána óbreytta lækkar meðalverð dilka frá fyrra ári úr 438 kr. í 399 kr en meðalverð fyrir fullorðið verður 110 kr. sem áður. Vegið meðalverð alls kindakjöts verður því 372 kr. í stað 407 kr. árið 2009. Þessi meðaltöl miðast við flokkun á landinu öllu árið 2009.

Fyrirtækið mun bjóða upp á samfellda slátrun frá 9. september til 5. nóvember en slátrun utan þess tíma verður hætt. Gjald fyrir heimtöku hækkar jafnframt.

Rétt er að vekja athygli á því að verðbólga mælist nú 5,7% á ársgrunni. Beingreiðslur til bænda munu einungis hækka um 2% á þessu ári. Til viðbótar er óvissa um mótframlag ríkisins til Lífeyrissjóðs bænda og tryggingargjald hefur hækkað verulega síðustu misseri. Þetta þýðir kjaraskerðingu fyrir sauðfjárbændur á næstu misserum.

Nánari umfjöllun verður hér á vefnum síðar en verðtöfluna sjálf og rökstuðning SS að baki henni er að finna í fréttabréfi SS sem nálgast má hér.

 
Kjötfarsverð stöðugast af unnu kjöti
Mánudagur, 26. júlí 2010 09:19
kjotfarsMiklar verðsveiflur hafa verið á unnum kjötvörum á síðustu árum. Verðbreytingar hafa þó verið misjafnar eftir vöruflokkum

Kjötfars hefur haldist hvað stöðugast af vöruflokkunum, en lifrakæfan hefur hækkað mest og rúmlega tvöfaldast í verði, eða úr 623 í maí 1997 upp í 1.350 krónur í maí 2010. Miklar sveiflur hafa verið í verði á nautahakki, en það hækkaði mest upp í 1.270 krónur á kílóið í maí 2006 en féll svo aftur niður í rúmar 1.100 krónur á kílóið í febrúar árið eftir.

Kjötfars hefur hækkað minnst, en kílóverðið var 383 krónur í maí 1997 og í maí 2010 var það 520. Það hefur þá hækkað um 35 prósent. „Kjötfars getur verið mjög misjafnt eftir því hvernig það er framleitt," segir Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands. „Kostnaður getur auðveldlega verið lækkaður með því að nota ódýrara hráefni saman við það."

Nánar á Visir.is
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>