ja_mageia

Haustmyndir
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Forsíða

6 mánaða uppgjör SS
Föstudagur, 03. september 2010 08:48

Sláturfélag Suðurlands hefur gefið út uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2010

Helstu atriði þess eru:
· Tekjur á fyrri árshelmingi 4.066 mkr. og aukast um 10,4% milli ára.
· 193 mkr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins, en 46 mkr. tap á sama tíma í fyrra.
· EBITDA afkoma var 340 mkr. en 275 mkr. árið áður.
· Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur 13 mkr. en 188 mkr. í fyrra.

Ítarlega greinargerð má lesa hér

 

 
Viðtöl við Sindra
Fimmtudagur, 02. september 2010 16:27
Sindri Sigurgeirsson formaður LS var í viðtali í fréttum RÚV í vikunni.  Viðtalið fjallaði um afurðaverð og ályktun LS um málið.  Hlusta má á viðtalið hér.

Sindri var einnig gestur í þættinum Hrafnaþing á ÍNN fyrir skömmu. Horfa má á þáttinn hér. Athugið að viðtalið byrjar ekki fyrr en eftir fyrsta auglýsingahlé.
 
Greiðslukjör - Leiðrétting vegna SAH
Miðvikudagur, 01. september 2010 15:16
Í grein framkvæmdastjóra LS um afurðaverð í Bændablaðinu 26. ágúst sl. er fjallað stuttlega um greiðslukjör í lokin.

Þar urðu þau mistök að textann mátti skilja sem svo að innleggjendur SAH ættu ekki kost á að fá innlegg sitt staðgreitt. Það er rangt.  Hægt er að fá allt innleggið greitt á föstudegi eftir innleggsviku eins og verið hefur þrátt fyrir að einnig sé boðið upp á annað fyrirkomulag.  Beðist er velvirðingar á þeim misskilningi sem þetta hefur valdið.

Hér er til áréttingar yfirlit um þau greiðslukjör sem eru í boði

SS, KS og SKVH: Allt innlegg greitt fyrsta föstudag eftir innleggsviku.

SAH: Allt innlegg greitt fyrsta föstudag eftir innleggsviku
EÐA 75% greitt fyrsta föstudag eftir innleggsviku og 25% 1. mars 2011.  Sé síðari kosturinn valinn greiðist 1. mars 2011, 4 kr./kg álag á allt innleggið, ekki bara síðari greiðsluna

Norðlenska: 80% innleggs greidd fyrsta föstudag eftir innleggsviku. 20% af innleggi í ágúst og september verða greidd 12. nóvember og  20% af innleggi í október verða greidd 12. desember.

SV: Fyrir innlegg frá 1-10 september verður greitt 22. september. Fyrir innlegg frá 13.- 24. september verður greitt 8. október. Fyrir innlegg frá 27 sept.til 8. október verður greitt 20.október. Fyrir innlegg eftir 11. okt greitt 1- 3 nóvember.

Fjallalamb: Fjallalamb: 70% innleggs greidd fyrsta föstudag eftir innleggsviku. 30% eru greidd í lok desember.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>