ja_mageia

Haustmyndir
  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Forsíða

Af nettengingum á nýju ári
Miðvikudagur, 09. janúar 2008 16:11

pfslogo.gifInternettengingar í dreifbýli eru mikið hagsmunamál bænda ekki síst vegna þess hve öflugt tæki netið er til að afla upplýsinga og skiptast á þeim við aðra og stundum er það orðið nauðsynlegt atvinnutæki eins og þeir þekkja sem skrá skýrsluhald í sauðfjárrækt í gegnum fjarvis.is. Skv. áætlunum hins opinbera er ætlunin að Fjarskiptasjóður sem stofnaður var með 2.5 milljarða framlagi af söluverðmæti Símans eigi að tryggja öllum þeim háhraðatengingar sem þess óska.

Að auki er það hlutverk sjóðsins að bæta GSM samband á þjóðvegum landsins og helstu ferðamannastöðum.  Sjóðurinn hefur þegar boðið út tvo áfanga í því verkefni og er fyrri áfanga lokið.  Tilboð í síðari áfangann voru opnuð í síðasta mánuði og er áætlað að framkvæmdin taki 22 mánuði.  Jafnframt var sjóðnum ætlað að tryggja það að sjómenn á hafi úti og allir landsmenn gætu náð dagskrá RÚV í gegnum gervihnött og því verkefni er lokið.

Nánar...
 
Næstu námskeið
Þriðjudagur, 08. janúar 2008 14:46

lbhi_logos.jpgEndurmenntunardeild Landbúnaðarháskólans heldur uppi stöðugu framboði af námskeiðum fyrir bændur um margvísleg efni.

Á næstunni eru m.a. námskeiði um jarðveg, áburð og áburðarnotkun (á Egilsstöðum 17. jan) - námskeið í sauðfjárræktarkerfinu fjarvis.is (á Hvanneyri 27. feb).  Einnig er boðið upp á námskeið í spuna (Hvanneyri 23. feb) og í flókagerð (Hvanneyri 29. mars).

Nánari upplýsingar að neðan.

Nánar...
 
Ný fjárhús í Eyjafirði og Noregi
Mánudagur, 07. janúar 2008 14:22

halldorsst.jpgÍ byrjun desember var tekið í notkun nýtt fjárhús á Halldórsstöðum í Eyjafjarðarsveit hjá þeim hjónum Rósu Steinunni Hreinsdóttur og Guðbirni Elfarssyni sem búa þar á bæ ásamt dóttur sinni, Bjarneyju.

Um er að ræða stálgrindahús, 30 x 16 metrar, og áætlað rými fyrir um 320 kindur.  Plöturnar eru yleiningar.    

Kindurnar verða á taði og hreinsað verður undan þeim með liðléttingi.  Í júní var hafist handa við byggingu þegar byrjað var á að moka upp fyrir grunninum.  Ætla má að náðst hefði að flytja inn fyrr ef fyrsta sending hússins hefði ekki farið í sjóinn í flutningum til landsins í september enda allt timbur- og steypuverk meira og minna tilbúið þegar grindin kom á Halldórsstaðahlaðið seinni part nóvembermánaðar.  Reising hússins gekk mjög hratt og vel fyrir sig enda féð komið í húsið 2. desember. 

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 251 252 253 254 255 256 257 258 259 260 Næsta > Síðasta >>